
Sýningin IBTM Americas verður haldin í Mexico City 19.-20. ágúst 2026.
Sýningin er haldin í Centro Banamex og stendur yfir í tvo daga með fyrirframbókaða fundi í fundarkerfi á vegum sýningarhaldara.
Íslandsstofa heldur utan um þjóðarbás fyrir samstarfsfyrirtæki Meet in Reykjavik. Fyrirtæki með viðurkennda sjálfbærnivottun (s.s. Iso 14001, Svansvottun, Vakann ofl.) njóta forgangs í þátttöku á sýningum og öðrum sértækum verkefnum á vegum Meet in Reykjavík.
Verð:
Áætlað verð miðað við 6 þátttökufyrirtæki er 920.000kr. Greiðslur skiptast í tvennt, staðfestingargjald 50% innheimt í byrjun mars og svo lokagjald innheimt í ágúst.
Athugið að ferðakostnaður er ekki innifalinn. Við skoðum vel hvar er öruggt og gott að gista og deilum með skráðum þátttakendum. Við erum einnig að skoða vinnustofu í Toronto, Chicago eða Minneapolis í tengslum við sýninguna.
Innifalið í þátttökugjaldi er:
- Fundarborð
- Aðgangur að fundarbókunarkerfi sýningarinnar
- Upplýsingar um markaðinn
- Kaffiveitingar fyrir gesti/sýnendur, ef það er pláss
- Áfangastaðakynningar þar sem sýnendur eru kynntir fyrir gestum, ef það er kostur á því innan fjárhagsáætlunar og með tilliti til pláss
Upplýsingar veitir:
Hildur Björg Bæringsdóttir, hildur@meetinreykjavik.is
Skráning fer fram hér - skráningarfrestur er til 16. febrúar
Nánari upplýsingar:
IBTM World Trends Report for 2026
--
IBTM Americas will be held in Mexico City from 19-20 August 2026.
The exhibition takes place at Centro Banamex and runs for two days, featuring pre-scheduled meetings through the official appointment booking system organised by the event organisers.
Business Iceland (Íslandsstofa) manages the national stand for partner companies of Meet in Reykjavík. Companies holding recognised sustainability certifications (such as ISO 14001, Nordic Swan Ecolabel, Vakinn, etc.) are given priority for participation in trade shows and other specialised projects organised by Meet in Reykjavík.
Price:
The estimated participation fee, based on 6 participating companies, is ISK 920,000. Payments are split into two instalments: a 50% confirmation fee invoiced at the beginning of March, followed by the final payment invoiced in June.
Please note that travel costs are not included. We carefully review accommodation options to ensure they are safe and suitable, and we will share recommendations with registered participants. We are also exploring the possibility of organising a workshop in Toronto, Chicago, or Minneapolis in connection with the trade show.
Included in the participation fee:
- Meeting table
- Access to the show’s appointment booking system
- Market information
- Coffee service for visitors/exhibitors, subject to availability
- Destination presentations where exhibitors are introduced to visitors, subject to budget and space availability
Further information:
Hildur Björg Bæringsdóttir, hildur@meetinreykjavik.is
Registration takes place here – the registration deadline is 16. February.
Additional information: