MICELAND 2026

Íslandsstofa (Meet in Reykjavík-Iceland Convention Bureau) býður upp á kynningarvettvang fyrir fyrirtæki í MICE ferðaþjónustu miðvikudaginn 14. janúar 2026 á Hilton Reykjavík Nordica Hotel í forrými aðalsalar (A+B) á fyrstu hæð.

MICELAND er hluti af ferðaþjónustuvikunni. Nánari upplýsingar um ferðaþjónustuvikuna er á vef Ferðamálastofu og þar geta gestir skráð sig.

Markmið og tilgangur viðburðarins er að skapa vettvang þar sem sem birgjar, hótel, afþreyingarfyrirtæki og aðrir sem þjónusta MICE ferðamenn geta kynnt vöruframboð sitt og helstu nýjungar fyrir ferðaþjónustuaðilum (DMC/PCO), hagaðilum og öðrum boðsgestum.

MICELAND er kjörið tækifæri fyrir allt fagfólk í MICE ferðaþjónustu hér á landi til að hittast, stilla saman strengi og þétta raðirnar.

SKRÁNING FYRIR SÝNENDUR Á MICE LAND 2026

  • Eingöngu samstarfsfyrirtæki Meet in Reykjavík-Iceland Convention Bureau geta skráð sig sem sýnendur og er ekkert gjald tekið fyrir þátttöku. Nánari upplýsingar um þátttöku í verkefninu Meet in Reykjavík-Iceland Convention Bureau má finna hér:
  • Skráningarfrestur er til 6. janúar fyrir sýnendur. Fyrirtæki eru hvött til að skrá þátttöku sína fyrir hátíðarnar.

Fyrirkomulag vinnustofunnar er þannig að birgjar s.s. hótel, afþreyingarfyrirtæki og aðrir sem þjónusta MICE ferðamenn fá tækifæri til að kynna vöruframboð sitt og helstu nýjungar fyrir gestum.

NÁNAR UM VIÐBURÐINN:

▪ Salurinn opnar kl. 8:00 og hafa sýnendur þá milli 8:00-10:00 til að stilla upp. Dagskrá dagsins er eftirfarandi:

08:30–10:00 Gervigreind og tækni
10:00-10:30 Kaffihlé með léttum veitingum
10:30-12:00 Markaðssamtal og ferðaþjónusta framtíðar (hér verður fjallað um trend á MICE markaði)
12:00-13:00 MICEland og hádegishlé með veitingum - gestir geta spjallað við sýnendur án þess að bóka fundi
13:00-14:15 Öryggi í ferðaþjónustu - Aðgerðir og ábyrgð
14:15-15:00 Menninga- og söguferðaþjónusta 
15:00-15:15 Kaffihlé með léttum veitingum
15:15-17:00 MICEland hraðstefnumót - bókað í gegnum kerfi
15:15-17:00 Hraðstefnumót með áherslu á ferðatækni, sjálfbærni og öryggislausnir (fer fram í öðrum sal, H+I á 2 hæð Hilton)
▪ Hver sýnandi fær úthlutað háu hringborði í forrými A+B salar á jarðhæð, allt að 25 borð í boði, eftir að það fyllist, þá getum við boðið 8 borð í rýminu til vinstri (Vox Lounge). Hér er mynd af rýminu.

▪ Þau sem eru sýnendur standa vaktina í kaffihléum, hádegishlé og milli 15:15-17:00 þegar fundir eru bókaðir fyrirfram í gegnum kerfi. MICEland sýnendur eru hvött til að fara inn í sal og hlýða á erindin fram til kl. 15:15, þá hefjast hraðstefnumót samkvæmt fundarbókun í gegnum kerfi. Nánari upplýsingar og skráning í þetta kerfi fer fram 7-14 janúar.

▪ Sýnendur geta komið með roll-up standa (e. gardínur) fyrir sýnileika.

▪ Ekki er gert ráð fyrir aðgangi að rafmagni við öll borð.

▪ Að öðru leyti geta þátttakendur nýtt það kynningarefni sem þeir kjósa.


NOKKRAR UMSAGNIR EFTIR MICE LAND 2024:

"Það er bara geggjað að hitta fólk, sjá og hittast í raunheimum."
Ýmir Björgvin Arthúrsson, Magical Iceland

"Það er alltaf einhver sem ótrúlegt en satt hafa ekki heyrt af okkur ennþá og svo ég búin að hitta nokkra í dag sem þekktu okkur en greinilega ekki alveg nógu vel því það var hægt að segja þeim ýmislegt til viðbótar."
Ólafur Sveinsson, Your Friend in Reykjavík

"Þetta getur líka aukið samstarf milli aðila sem eru þá í sama business og við öll auðvitað."
Kristín Sóley Björnsdóttir, Menningarhúsið HOF Akureyri

"Fólk þarf bara greinilega að mæta á svona viðburði til að sýna sig og sjá aðra, kynna vöruna sína, kynnast annarri vöru, þannig að ég er mjög bjartsýnn með viðburðina hér í framtíðinni."
Valgeir Bjarnason, Bagbee

MYNDBAND FRÁ MICE LAND 2024:

Nánari upplýsingar veitir:

Hildur Björg Bæringsdóttir

Viðskiptastjóri, Meet in Reykjavík