Sýningin The Meetings Show verður haldin í London 24.-25. júní 2026.

Sýningin er haldin í Excel London og stendur yfir í tvo daga með fyrirframbókaða fundi í fundarkerfi á vegum sýningarhaldara.

Íslandsstofa heldur utan um þjóðarbás fyrir samstarfsfyrirtæki Meet in Reykjavik. Fyrirtæki með viðurkennda sjálfbærnivottun (s.s. Iso 14001, Svansvottun, Vakann ofl.) njóta forgangs í þátttöku á sýningum og öðrum sértækum verkefnum á vegum Meet in Reykjavík.

Verð:

Áætlað verð miðað við 6 þátttökufyrirtæki er 820.000kr. Greiðslur skiptast í tvennt, staðfestingargjald 50% innheimt í byrjun mars og svo lokagjald innheimt í júní.

Athugið að ferðakostnaður er ekki innifalinn. Við mælum með því að sýnendur bóki sig sjálf á London Canary Wharf | TRIBE Hotels. Það er vel staðsett bæði miðað við flugvöll og sýninguna.

Innifalið í þátttökugjaldi er:

  • Fundarborð
  • Aðgangur að fundarbókunarkerfi sýningarinnar
  • Upplýsingar um markaðinn
  • Kaffiveitingar fyrir gesti/sýnendur, ef það er pláss
  • Áfangastaðakynningar þar sem sýnendur eru kynntir fyrir gestum, ef það er kostur á því innan fjárhagsáætlunar og með tilliti til pláss

Upplýsingar veitir:
Hildur Björg Bæringsdóttir, hildur@meetinreykjavik.is

Skráning fer fram hér - skráningarfrestur er til 9. febrúar


Nánari upplýsingar:

Vefur sýningarinnar

IBTM World Trends Report for 2026

 

--

The Meetings Show will be held in London from 24–25 June 2026.
The exhibition takes place at ExCeL London and runs for two days, featuring pre-scheduled meetings through the official appointment booking system organised by the event organisers.

Business Iceland (Íslandsstofa) manages the national stand for partner companies of Meet in Reykjavík. Companies holding recognised sustainability certifications (such as ISO 14001, Nordic Swan Ecolabel, Vakinn, etc.) are given priority for participation in trade shows and other specialised projects organised by Meet in Reykjavík.

Price:
The estimated participation fee, based on 6 participating companies, is ISK 820,000. Payments are split into two instalments: a 50% confirmation fee invoiced at the beginning of March, followed by the final payment invoiced in June.

Please note that travel costs are not included. We recommend that exhibitors book their own accommodation at London Canary Wharf | TRIBE Hotels, which is well located in relation to both the airport and the exhibition venue.

Included in the participation fee:

  • Meeting table
  • Access to the show’s appointment booking system
  • Market information
  • Coffee service for visitors/exhibitors, subject to availability
  • Destination presentations where exhibitors are introduced to visitors, subject to budget and space availability

Further information:
Hildur Björg Bæringsdóttir, hildur@meetinreykjavik.is

Registration takes place here – the registration deadline is 9. February.

Additional information:

The Meetings Show website